Grindavíkur líf

15.01.2008 20:33:13 / hv77

Snjór og aftur snjór!!

Jæja þá er komið nýtt ár!! Best að reyna að blogga eitthvað hér. Er núna á kafi í snjó, held að allur snjórinn sem átti að koma í desember sé hér nú. :lol: Komst ekkert út úr húsi í gær ,bara rétt rak nefið út um morgunnin að reyna að moka gafst upp á því hefði verið allann daginn að því. Nú eru allir krakkanir hér upp á húsum að leika sér.:haha: Valdi hefur ekkert komist í leikskólann í 2 daga. Var ekki búið að moka götuna hjá okkur fyrr en um 13. Svo hann kemst vonandi á morgun. Svo er stefnan að fara á þorrablót fyrir vestan 26 jan. Bara verð að mæta mamma og Eggert eru á skemmtinefnd :D Verður gaman að sjá það. Svo verða Skógarpúkanir að spila.8) Þannig að mar verður að láta sjá sig. Skora á alla að mæta verður mikið gaman og mikið fjör!! :haha: Jæja annars er allt gott að frétta. see you.


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 22:16:54 / hv77

Rok og jól

Ég er farin að halda að ég eigi að hætta að skrifa eitthvað hér. Er búin að reyna örugglega 5 sinnum og alltaf rekst ég í einhvern takka og allt hverfur!! En best að reyna aftur og halda puttunum hátt á lofti. :lol: Það er búið að vera vitlaust veður hér í dag og ekkert hægt að fara út. Leikskólinn var lokaður við mikinn fögnuð Valda eða þannig. Hann fékk bara að dunda sér með bróa sínum og mömmu. :D Er alveg að vera búin að öllu fyrir jólin,bara nokkrar gjafir eftir og blessuð kortin.8) Já og barka annan skamt af piparkökum því að litla hendur eru duglegar að lauma sér í boxin. :haha: Er meira að segj búin að ákveða hvað ég ætla að gefa Adda. Er alltaf á síðasta snúning með hann. Þessir kallar eru svo spes. ;) Og það er........... :haha: jæja er komin með ritstíblu sem losnar örugglega ekki fyrr en eftir jól!!  Svo segi bara Gleðileg jól ef einhver nennir að lesa þetta. :lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 21:23:31 / hv77

bbbbbuuuurrrrrr

Þetta er nú meira veðrið alla daga. Ekkert nema rigning og rok dag eftir dag!!  En get samt glaðst yfir nokkru, var að eignast frænda á þriðjudag. Loksins ákvað kúlubúinn hennar Höllu systu að koma og hitta liðið. :) Bara viku seinna. Fór og kíkti í heimsókn til þeirra í gær, og þetta er auðvita myndar strákur :haha: Hann var 16 merkur og 56cm. Annars er annað lítið að frétta hérna. Valdi alltaf hress og kátur og benni líka. Benni er orðinn algjör bolti er að reyna að flýta sér að stækka svo hann geti farið að hlaupa og tæta allt í kringum sig!! 8|  Valdi er duglegur á leikskólanum. Það nýasta hjá honum er að segja afhverju. Þannig að mar gerir ekkert annað ein að útskýra allt sem mar segir. :) Svo á hann afmæli 31 okt, verður 4 ára!! ótrúlegt hvað tíminn líður fljótt.:$ Hann vill sko fá spæterman köku, þar sem ég er ekki alveg sá besta í kökuskreitingu þá verður bara leitað að bakara sem tekur það verk að sér. Ef einhver veit um bakara sem er ekki voða dýr með svona myndakökur endilega látið mig vita.:haha: Jæja skrifa meira seina.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 00:15:38 / hv77

helló!!

  1. Halló halló!! Komin tími til að láta vita að mar er enþá lifandi. :lol: Ýmislegt hefur gerst umdanfarið, td er kominn lítill prins á heimilið. Hann fæddist 4 júní og allt gekk vel. Hélt á tímabili að hann ætlaði ekkert að koma,var komin viku frammyfir og fann ekkert. Svo 4 júní fór ég í skoðun og ljósan hreifði aðeins við belgnum en samt fékk ég varlan neina verki. En svona til öriggis fór ég í bæinn og átti að fara aftur í skoðun á fæðingadeildinni um kvöldið. Svo ég beið róleg hjá tengdó eftir að Addi væri búinn að vinna og um 19 fórum við upp á deild í monetor. Þar vissi ljósan ekkert hvað hún gæti gert fyrir mig, gæti alveg sett mig í monetor. Svo var þar í klukkutíma og ekkert merkilegt vara að ske, var samt alltaf með verki sem voru að aukast samt ekkert mikið. Svo ákvað fæðingarlæknirinn að skoða mig áður en hann mundi senda mig heim, og þá var ég komin með 8-9 í útvíkkun!! Svo það var bara farið upp á fæðingargang og beðið. 8) Reyndar var ekkert beðið lengi því prinsinn lét sjá sig klukkan 22:21 og allt gekk vel. :haha: Vorum í hreiðrinu yfir nóttina sem var fínt. Valdi kom svo um daginn að sjá bróður sinn, og honum éisr bara vel á hann. Hann er voða duglegur að hjálpa til, ná í bleiju, tæma baðið hans, ná í snuddu og fl. Hann er líka voða skilningsríkur þegar mamma hans kemst ekki alveg strax að hjálpa honum með eitthvað því hún er að gef litla bróður að borða. Hann bara bíður rólegur og er ekkert að æsa sig.:) jæja þetta er alveg rosalegt met hjá mér núna aldrei skeifað eins mikið. Loksins eitthvað um að vera í Grindavíkini. 8)8)

» 8 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 10:33:24 / hv77

Fréttir!!

Halló halló!! Ef bara mætt hérna aftur með smá fréttir!! Var í skírn hjá Óskari bróður í gær, og stelpan fékk nafnið Ásgerður Líf. Svo þegar búið var að skíra þá sagði presturinn að athöfnin væri ekki alveg búin því Silja og óskar ákváðu að gifta sig í leiðinni. :D þannig að nú eru þau orðin hjón. Til haninguju með það. :) jæja ekkert meira að ske hjá mér og mínum í bili.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 14:08:10 / hv77

ER hér

Jæja kanski kominn tími að láta vita að mar er enþá á lífi.:) Það er nú lítið um að vera hjá mér þessa dagana. Bara bíða eftir að litla krílið komi í heiminn!!8) Kemur vonandi kringum 25 maí. Væri fínt að það láti sjá sig 20 maí því þá á Valdís litla systir afmæli. :D Ekki slæm afmælisgjöf. Svo var óskar og Silja að fjölga mannkyninu. 19 apríl kom lítil stelpa í heiminn!! Loksins komin stelpa í stráka fansinn!!8) Allt gengur vel hjá þeim. Jæja þá er komið að júrovison!! Ætli Eiki komist áframm??? Ætla ekkert að vera of bjartsýn á það. Hef ekkert heyrt hvernig hin lögin eru, svo það verður filgst vel með í kvöld.Jæja  bið að heilsa ó bili.


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 17:11:04 / hv77

Gúgú

Best að sétja einhverjar línur hingað. Það er allt rólegt héna í Grindavíkinni. Er hætt að vinna orðið svolítið erfitt að komast í pollagallann og vinna á sama hraða og hinir. :lol: En allt gengur vel annars. Já við erum sem sagt öll risin upp úr flensunni, Valdi var reyndar lengi að losna alveg við hitann var alltaf með einhverjar kommur. Svo hann er loksins byrjaður aftur í leikskólanum eftir 2 vikna frí. Svo á laugardag verður myndlistaruppboð í skólanum, börnin eru búinn að vera duglega að gera allskonar listaverk og sem sagt uppboð á laugardag ef einhver hefur mikinn áhuga á list  endilega rennið til grindavíkur og nælið ykkur í nokkur glæsileg listaverk. 8) Jæja skrifa eitthvað meira seinna.


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 20:25:36 / hv77

Pestabælið mikla

Kominn tími að skrifa eitthvað bara næstum því af viti. Hehe :lol: Það er nú ekki mikið að frétta hérna. Bara búin að taka út pestir með Valda.:( Hann byrjaði að æla og æla og á aðfara nótt föstudags, var svo orðinn góður um morguninn. Svo var allt í góðu á laugardag, svo á sunnudag fékk hann niðurgang og smá hita með. Á mánudag var hann kominn með um 38 stiga hita og kvef, gat varla sofið vegna hósta greyið. Svo tók ég við þessu öllu saman. Nema slepp vonandi við hitan. 7, 9, 13, bank bank. 8| Þannig það eru allri búnir að vera heima þessa vikuna. Addi hefur sloppið best út úr þessu enþá. 8| Jæja skrifa eitthvað neira seinna. :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 22:40:59 / hv77

Gleðilegt ár!!

Gleðilegt nýtt ár allir til lands og sjós.:D Þetta er nú búinn að vera góður tími. Fyrst jól og svo áramót gerist ekki betra. Við vorum heima um jólin og buðum tengdó og systur hans Adda í mat. Heppnaðist bara vel. Valdi var í essinu sínu allt kvöldið, var mjög hjálpsamur að taka upp pakka fyrir alla.:D Svo fórum við í bænum um áramótin, og vorum hjá hjá tengdó. Valda fannst alveg rosalega gaman að fylgjast með flugeldunum, og vildi ólmur halda á blisum og stjörnuljósum. En hvernig fanst ykkur áramótaskaupið?? Mér fanst það alveg þokkalegt. jæja skrifa meira síðar.

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 20:37:03 / hv77

Hér er ég

Halló og gleðileg jól allir. Nú er mar að jafna sig af öllu sukkinu um jólin,sem gengur bara þokkalega. 8) Greiið hann Valdi er búinn að vera veikur öll jólin, með hita og útbrot.:( Fórum með hann á læknavaktina á jóladag, og læknirinn sagði að hann væri með gin og klaufaveiki!!  Ég fór að hugsa: eru ekki bara  klaufdýr sem fá svoleiðis?? Þá er það vírus sem er kallaður þetta. 8| Það er ekert sma gaman að heyra viðbrögðin hjá fólki sem spurja hvað sé að hjá honum.:) Hann er sem betur fer allur að lagast. jæja nú er komið að aðal fréttinni!! ( það er að segja ef ekki allir vita það þegar) Hrönnslan ætlar að fjölga mannkyninu hérna í grindavík í sumar. :haha: Er komin 17 vikur og 3 dag. Allt hefur gengið ágætlega fyrir utan MIKLA ógleði!! :S  Jæja þá er þetta orðið gott í bili er bara orðin nokkuð góð í þessu það lengist alltaf hjá mér bloggið.:lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 14:02:17 / hv77

Jóla jól

Halló halló. Þá er komið að því að rita eitthvað hérna. Allt gengur vel hérna í Grindavíkinni, reyndar er ég búin að vera veik undanfarið en nú er allt að komast í lag aftur. Er búin að vera voðalega dugleg og baka nokkrar smákökur sem heppnuðust bara ágætlega, fyrir utan nokkra bruna. :lol: Æfingin skapar meistarann heyrði ég einhvarstaðar. 8) Svo eru jólagjafinar að verða búnar,bara eftir að kaupa fyrir Adda, sem er alltaf hausverkur, hef ekki hugmynd hvað ég á að gefa honum. Endilega komið með einhverjar tilögur. :) Jæja þá er best að hætta þessu bulli og klára að pakka inn gjöfunum. Ef ekkert heyrist í mér fyrir jól þá óska ég ykkur gleðilegra jóla. ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 21:15:17 / hv77

Allt að ske!!

Góða kvöldið allir!! Þá er best að setjast aðeins niður og rita nokkrar setningar. Það er nú ekkert mikið búið að ske síðan síðast. Við erum núna að laga bílskúrinn og geymsluna hjá okkur því það stendur til að gera hana að þvottahúsi og svo ætlum við að loka skotinu hjá okkur og gera það hluta af húsinu. Nei það er aldrei neitt að gerast hjá mér.:haha: Valda gengur mjög vel á leikskólanum, smá munur á þessum skóla og fyrir vestann.:lol: Svo er ég mjög sennilega komin með vinnu!! Sótti um hjá Vísir það er fiskvinnslufyritæki héwrna. Svo ég ætla bara að fara í slorið. 8) Verður örugglega ágætt er orðin leiða að hanga heima og gera ekkert annað en að taka til og þrífa!! :klikk: Jæja þetta er orðið gott í bili.

» 10 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 17:21:52 / hv77

Hæ hó :)

Halló halló!! Jæja er ekki kominn tími að skrifa eitthvað hérna?? Fyrst enginn mótmælir því það læt ég bara vaða á það. :haha: Er í sumarfríi (eða haustfríi) Og er í dag deginum eldri en í gær. ;) Takk fyrir takk fyrir. Jæja það er nú ekkert mikið að frétta, annað en að ég og Valdi erum komin aftur í Grindavíkina og hann er að byrja í leikskóla. Fórum í dag í heimsókn og leist bara vel á. Svolítið stærra en í sveitinni. :) Ég ætla svo að demba mér í að finna einhverja vinnu. Væri alveg til að fá borgað að vera heima sko.:haha: Við fórum í smá ferðalag fyrir stuttu,fórum að Kárahnjúkum og bara man ekki hvað leiðin heitir en ein leiðin heitir Gæsavatnaleið.:D Semsagt var mikill hossingur að keyra yfir hraun og grjót. 'eg var mjög fegin að sjá gras og malbik þegar við vorum komin niður. :haha: Jæja ég ætla að koma mér út í blíuna í Grindavíkinni. Skal leggja mig allla framm og vera duglegri að skrifa hér eftir. :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 00:21:58 / hv77

Hey hey

Halló halló!! Ég er ekki farin að synda í húsinu mínu, allt vatn er farið. :D Við fengum þetta bætt, Sem betur fer. Og núna erum við (eða Addi) að setja parket á höllina. 8) Ég og Valdi erum fyrir vestan núna, og verðum þar eitthvað áfram. Hann er byrjaður í leikskóla sem gengur alveg ljómandi vel. Jæja kem seina með eitthvað fræðandi æur sveitinni. :haha:

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.11.2005 15:59:44 / hv77

Vatn vatn

Hæ hæ. Koinn tími að skrifa eitthvað. Takk fyriir  allar afmælis kveðjunar han Valdi. Hann var svo góður og  stiltur allann daginn. Gerði ekkert annað en að kissa mig og  knússa. :haha: Við erum ekkert smá heppin eða þannig.  Það sprakk ofn  hjá okkur í nótt!! Og þegar við komum framm  í morgu var helmingurinn af stofunni á floti.:evil: Sem betur fer þá held ég að það hefi ekki orðið mikllar skemdir sem betur fer.Svoo hrinum við í tryggingarfélagið og  fengum þau svör að við værum ekki með trygggingu sem bætir svona tjón!!:frown: Við sem vorum búinn að tryggja okkur bak og fyrir í þeirri góðu  trú að ef eitthvað kæmi fyrir þá fengju við það  bætt. Svo ef einhverjir eru ekki með fasteigna tryggingu þá um að gera að bæta henni í pakkann. Jæja þá er best að láta þetta duga  í bili.


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2